Upplýsingar
 
Upplýsingar um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg

Velkomin(n) á heimasíðu sumarstarfa hjá Reykjavíkurborg. Við viljum hvetja þig til þess að lesa vel upplýsingar um störf í boði sem hægt er að nálgast hér neðar í word-skjali. Þar eru ýmsar upplýsingar um störfin sem gott er að kynna sér áður en sótt er um t.d. um mismunandi lágmarksaldur eftir störfum.

Upplýsingar um störf

StarfsreglurVUF (PDF-skjal)

Umsóknarferlið:

Til þess að sækja um sumarstarf smellirðu á hnappinn "Sækja um starf" sem er hér efst á síðunni til hægri.
Þá birtast þær stofnanir sem þú getur valið um og þú velur fyrst þá stofnun og það starf sem þú helst villt sækja um (smellir á bláu píluna fyrir framan).
Þá birtast þau störf sem eru í boði undir hverja stofnun og þú velur það starf sem þú hefur áhuga á.
Þá birtist lýsing á starfinu og linkur sem þú smellir á til þess að sækja um viðkomandi starf
Upp kemur gluggi þar sem þú slærð inn kennitöluna þína og birtist þá umsóknarformið í heild sem þú svo fyllir vandlega út.
Þú getur sótt um fjögur störf, eitt aðalstaf og svo þrjú til vara.
Þegar þú hefur lokið umsókninni verður þú að ýta á takkann "Senda" til þess að ljúka umsóknarferlinu og þá á að sendast sjálfkrafa staðfesting á netfangið sem þú gafst upp í umsókninni. Mjög mikilvægt er að varðveita þá staðfestingu ef vafamál koma upp síðar. Ef þú hefur ekki gefið upp netfang í umsókninni geturðu prentað út staðfestinguna. Ef þú hefur ekki prentara skaltu senda tölvupóst á vuf@vuf.is og óska eftir staðfestingu á því að umsóknin hafi borist.

Algengar spurningar og svör við þeim:

Hverjir geta sótt um?
Þeir sem eru 17 ára (fæddir 1988) eða eldri og hafa lögheimili í Reykjavík geta sótt um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg.

Hvenær fæ ég svar um hvort ég fæ vinnu eða ekki?
Það er mjög misjafnt eftir stofnunum hvenær svör liggja fyrir. Í sumum tilfellum getur dregist fram í júní að gefa svar um starf.


Ef einhverjar spurningar vakna hvetjum við þig eindregið til þess að senda okkur fyrirspurn á netfangið vuf@vuf.is eða hringja í okkur í síma 5204600. Þér er einnig velkomið að líta á okkur hér í Vinnumiðlun ungs fólks, Pósthússtræti 3-5. Í Vinnumiðlun geturðu fengið aðgang að nettengdri tölvu og aðstoð við að fylla út umsóknina.

Sendu póst