Menningarmálanefnd

Um verksvið menningarmálanefndar Reykjavíkur er vísað til þjóðminjalaga nr. 88/1989, laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997, laga um náttúruvernd nr. 44/1999 og laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985, eftir því sem við á.

Borgarstjórn staðfesti samþykkt fyrir Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar 21. mars 2002.
Menningarmálanefnd starfar í umboði borgarráðs. Menningarmálanefnd fer með málefni lista- og byggðasafna sem rekin eru á vegum borgarsjóðs, sem og málefni Borgarbókasafns, Borgarskjalasafns, Listasafns Reykjavíkur, Menningarmiðstöðvarinnar við Gerðuberg og Viðeyjar. Hún fjallar einnig um tónlistar- og leiklistarstarfsemi og aðgerðir er stuðla eiga að öflugu menningarlífi borgarbúa.

Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar er skipuð fimm mönnum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna fulltrúa og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil nefndarinnar er hið sama og borgarstjórnar. Bandalagi íslenskra listamanna er heimilt að tilnefna tvo fulltrúa listamanna ásamt varamönnum í nefndina, til eins árs í senn, með málfrelsi og tillögurétti um mál sem snerta Kjarvalsstaði, og hafa þeir í vissum tilfellum einnig atkvæðisrétt. Menningarmálanefnd heldur fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur, annan hvern miðvikudag, kl. 12.00.
Borgarstjórn kaus í nefndina 20. júní 2002.

Kjörnir:
Stefán Jón Hafstein formaður
Ásrún Kristjánsdóttir
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Rúnar Freyr Gíslason

Til vara:
Dagur B. Eggertsson
Friðjón Guðröðarson
Ármann Jakobsson
Tinna Traustadóttir
Gísli Marteinn Baldursson

-Tölvupóstur í ráðhús-