|
Ráðhús Reykjavíkur
Sími: 563 1945
Bréfasími: 551 6606
Netfang: kristine@rhus.rvk.is
Miðborgarstjórn starfar skv. samþykkt borgarstjórnar frá 15. október 1998, sbr. einnig samþykkt borgarráðs 30. maí 2000, þar sem samþykkt er að miðborgastjórn starfi til loka kjörtímabilsins. Miðborgarstjórn starfar í umboði borgarráðs.
Miðborgarstjórn skal hafa frumkvæði að ýmsum málum til eflingar miðborgar Reykjavíkur, fylgja eftir þróunaráætlun miðborgar og samhæfa og bæta þjónustu borgarstofnana á svæðinu. Stjórnin skal vinna í nánu samráði við Borgarskipulag, fjárfesta og ýmsa hagsmunaaðila að áætlun um framtíðarþróun miðborgarsvæðisins. Leiðarþing miðborgarstjórnar er haldið árlega.
Miðborgarstjórn er skipuð sex mönnum og jafnmörgum til vara. Borgarstjóri er formaður stjórnarinnar en að auki eiga þar sæti tveir fulltrúar Reykjavíkurborgar og þrír fulltrúar utan borgarkerfisins sem með einum eða öðrum hætti tengjast málefnum miðborgarinnar. Borgarráð kaus í stjórnina 16. febrúar 1999.
Miðborgarstjórn heldur fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur annan og fjórða hvern mánudag, kl. 10.30.
Kjörnir:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður
Bolli Kristinsson, toti@ntc.is
Þorkell Sigurlaugsson, tsi@eimskip.is
Eva María Jónsdóttir, e.o@simnet.is
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Til vara:
Helga Jónsdóttir
Edda Sverrisdóttir
Guðmundur Hauksson
Árni Einarsson
Sigrún Magnúsdóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
|
 |