|
Leiðarþing miðborgarstjórnar var haldið þriðjudaginn 17.
október 2000 í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yfirskriftinni
,,Miðborgin - staða og framtíðarsýn". Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri og formaður miðborgarstjórnar sagði
m.a. í ræðu sinni að ef miðborgin ætti að standast samkeppni
við ný verslunarsvæði yrði hún að keppa á eigin forsendum og
leggja áherslu á sérstöðu sína. Borgarstjóri gerði grein fyrir því
sem verið verið er að vinna á ýmsum sviðum til að efla
miðborgina og styrkja.
Gestur þingsins var Tom Moore framkvæmdastjóri miðborgar
Aberdeen. Hann sagði að Aberdeen hefði eins og margar aðrar
borgir átt undir högg að sækja. Markvisst hefði verið unnið að
því að snúa vörn í sókn og árangurinn þegar orðinn
umtalsverður þótt enn séu mjörg verkefni sem bíða. Hann
sagði að þótt hlegið hefði verið í fyrstu að hugmyndin um
útikaffihús væru nú í Aberdeen fjölmörg slík sem störfuðu
mestan hluta ársins með hjálp utanhússhitara og skjólveggja.
Einar Örn Stefánsson framkvæmdastjóri Þróunarfélags
miðborgarinnar ræddi m.a. um fækkun verslana á
miðborgarsvæðinu og hagsmunaárekstra milli íbúa og
rekstraraðila.
Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskip
svaraði spurningunni ,,Er vænlegt að fjárfesta í miðborginni?"
og komst að þeirri niðurstöðu að svo væri. Honum reiknaðist
svo til að á næstu árum gæti fjárfesting í miðborginni orðið allt
að 25 milljarðar króna.
Að loknum framsöguerindum fóru fram skemmtilegar umræður
og lagðar voru fram fyrirspurnir.
Á fundinn mættu um hundrað manns.
Viðbrögð fólks eftir leiðarþingið voru að það hefði bæði verið
fróðlegt og skemmtilegt. |
 |