|
Skipulags- og byggingarnefnd starfar skv. 6. og 38. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Borgarstjórn staðfesti samþykkt fyrir nefndina 21. mars 2002.
Nefndin skal í umboði borgarráðs móta stefnu í skipulags- og byggingarmálum og taka ákvarðanir og gera tillögur til borgarráðs um skipulags- og byggingarmál á grundvelli skipulags- og byggingarlaga. Jafnframt hefur nefndin eftirlit með því að stefnumörkun og samþykktum hennar í viðkomandi málaflokkum sé fylgt. Ennfremur fer hún með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður. Til þess að vinna að þessum markmiðum er nefndin m.a. borgarráði og öðrum borgaryfirvöldum til ráðuneytis á sviði skipulags- og byggingarmála. Hún hefur frumkvæði að gerð skipulagstillagna og skipulagsskilmála og gerir tillögur til borgarráðs um skipulagsáætlanir og breytingar á þeim, þ.m.t. skipulag umferðar. Þá gerir hún tillögur til borgarráðs að staðbundnum byggingarsamþykktum. Nefndin getur óskað eftir að fá til umsagnar umsóknir, sem byggingarfulltrúa berast, sé um að ræða mannvirki sem hafa sérstakt gildi fyrir umhverfi sitt. Skipulags- og byggingarnefnd afgreiðir, án staðfestingar borgarráðs, tiltekin verkefni skv. skipulags- og byggingarlögum á grundvelli heimildar 2. mgr. 44. gr. sveitarstjórnarlaga.
Nefndin er skipuð sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil nefndarinnar er hið sama og borgarstjórnar. Borgarstjórn kaus í nefndina 20. júní 2002.
Nefndin heldur fundi í Borgartúni 3 á miðvikudögum, kl. 9.00.
Kjörnir:
Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður
Anna Kristinsdóttir
Björn Ingi Hrafnsson
Óskar Dýrmundur Ólafsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Guðlaugur Þór Þórðarson
Kristján Huðmundsson
Til vara:
Guðmundur Haraldsson
Þorlákur Traustason
Alfreð Þorsteinsson
Katrín Jakobsdóttir
Halldór Guðmundsson
Tinna Traustadóttir
Benedikt Geirsson
|
 |