Borgarstjórn - borgarfulltrúar - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir



Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fæddist í Reykjavík 31. desember 1954.
Ingibjörg Sólrún er gift Hjörleifi Sveinbjörnssyni.

Menntun:
Stúdentspróf frá MT 1974
BA-próf í sagnfræði og bókmenntum frá HÍ 1979
Gestanemi í sagnfræði við Kaupmannahafnarháskóla 1979-81 og stundaði síðan cand.mag. nám í sagnfræði við HÍ 1981-83.

Starfsferill:
Ritstjóri tímaritsins Veru 1988-90
Stundaði ritstörf og blaðamennsku 1990-91
Þingmaður Reykvíkinga 1991-94
Borgarstjóri 13. júní 1994.

Pólitískur ferill:
Formaður Stúdentaráðs HÍ 1977-78
Borgarfulltrúi Kvennaframboðs í Reykjavík 1982-86 og Kvennalistans í Reykjavík 1986-88, og þar af í borgarráði 1987-88.
Í skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar 1982-86
Í félagsmálaráði Reykjavíkurborgar 1986-89.
Alþingiskona fyrir Kvennalistann í Reykjavík 1991-94
Í félagsmálanefnd Alþingis 1991-94
Í heilbrigðis- og tryggingamálanefnd 1991-94
Í utanríkismálanefnd 1991-93
Í þingmannanefnd EFTA

Ritstörf:
Skrifaði bókina "Þegar sálin fer á kreik", minningar Sigurveigar Guðmundsdóttur kennara, útg. 1991
Hefur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit um almenn stjórnmál og kvenréttindamál.

Núverandi nefndarstörf:
Formaður borgarráðs
Formaður almannavarnanefndar Reykjavíkur
Formaður miðborgarstjórnar
Formaður stjórnar Aflvaka hf.
Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar
Formaður stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.

-Tölvupóstur í ráðhús-