Borgarstjórn - borgarfulltrúar - Ólafur F. Magnússon



Ólafur er fæddur 3. ágúst 1952 á Akureyri.
Eiginkona Ólafs er Guðrún Kjartansdóttir bókasafnsfræðingur f: 1953. Börn þeirra eru Anna Sigríður, næringafræðingur f: 1974, Magnús Friðrik, sálfræðinemi f: 1979, Kjartan Friðrik, sálfræðinemi f: 1979 og Egill Friðrik f: 1992.

Menntun:
1972 Stúdent frá Menntaskólanum í Hamrahlíð.
1978 Embættispróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands.
1980 Almennt lækningaleyfi á Íslandi.
1982 Almennt lækningaleyfi í Svíþjóð.
1984 Sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum í Svíþjóð.
1985 Sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum á Íslandi.

Starfsferill:
Frá 1986 Sjálfstætt starfandi heimilislæknir í Reykjavík.
1984-1986 Heilsugæslu- og sjúkrahúslæknir á Blönduósi.
1981-1984 Læknisstörf í Svíþjóð samhliða sérnámi.
1978-1981 Aðstoðarlæknir á Borgarspítala, Landsspítala Landakotsspítala, heilsugæslu- og sjúkrahúslæknir á Hvammstanga og heilsugæslulæknir á Dalvík.
Formaður Félags sjálfstætt starfandi heimilislækna frá stofnun þess árið 1989.
Í stjórn Læknafélags Reykjavíkur 1990-1994.

Pólitískur ferill:
Í stjórnum hverfafélaga Sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi og Bústaða- Smáíbúða- og Fossvogshverfi.
1990-1995 Í stjórn Heilbrigðis- og tryggingamálanefndar Sjálfstæðisflokksins.
1995 Í flokksráði frá þeim tíma.
1990-1998 Varaborgarfulltrúi.
1998 Borgarfulltrúi.
1999 Borgarráð, varamaður
1999 Helsti hvatamaður og talsmaður undirskriftarsöfnunar, Umhverfisvina.
2001 Sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum 20. desember og sagði jafnframt af sér sem varamaður í borgarráði og sem skrifari borgarstjórnar. Er áfram óháður borgarfulltrúi og gegnir áfram nefndarstörfum.

Ritstörf:
Greinar í dagblöð og fagrit.

Nefndarstörf á vegum Reykjavíkurborgar 1990-1998:
1990-1998 Stjórn Heilsugæslunnar í Reykjavík
1990-1994 Stjórn Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur
1990-1994 Umferðarnefnd, varamaður
1994-1996 Umferðarnefnd, aðalmaður
1996-1998 Skipulags- og umferðarnefnd, varamaður
1994-1998 Heilbrigðisnefnd

Núverandi nefndarstörf:
Stjórn Heilsugæslunnar í Reykjavík
Félagsmálaráð
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Framkvæmdanefnd um reynslusveitarfélög
Svæðisráð um málefni fatlaðra í Reykjavík
Samstarfsnefnd Reykjavíkur og Ölfushrepps um umhverfismál
Stjórn hjúkrunarheimilisins Eirar, varamaður
Fulltrúaráð hjúkrunarheimilisins Skjóls, varamaður

Viðtalstímar:
Samkvæmt samkomulagi.
Viðtalstímapantanir í síma: 568 7770, 568 0682

Tölvupóstfang: olafurfm@centrum.is

-Tölvupóstur í ráðhús-