Borgarráð

Borgarráð starfar skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Það var stofnað með samþykkt nr. 73/1932 um stjórn bæjarmálefna Reykjavíkur.

Í 39. gr. sveitarstjórnarlaga er hlutverk borgarráðs skilgreint. Borgarráð fer ásamt borgarstjóra með framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar og fjármálastjórn, að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin. Það hefur umsjón með stjórnsýslu Reykjavíkurborgar almennt og fjárstjórn hennar sérstaklega, undirbýr fjárhagsáætlanir og sér um að ársreikningar Reykjavíkurborgar séu samdir reglum samkvæmt. Borgarráði er heimil fullnaðarákvörðun mála sem eigi varða verulega fjárhag borgarsjóðs eða stofnana hans, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við framkvæmdastjóra um ákvörðunina. Í IV. kafli samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 60/1985, með síðari breytingum, eru ákvæði um borgarráð.

Í borgarráði sitja sjö borgarfulltrúar kjörnir af borgarstjórn til eins árs í senn. Borgarstjóri á sæti í borgarráði. Hann hefur þar ekki atkvæðisrétt, nema hann sé sérstaklega í það kjörinn. Flokkur sem fulltrúa á í borgarstjórn, en ekki fulltrúa í borgarráði, má tilnefna borgarfulltrúa til að sitja fundi borgarráðs með málfrelsi og tillögurétti. Borgarstjórn kaus í borgarráð 13. júní 2002.

Reglulegir fundir borgarráðs eru haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur á þriðjudögum og hefjast kl. 12.00.


-Tölvupóstur í ráðhús-