|
Almannavarnanefnd starfar skv. lögum um almannavarnir nr. 94/1962.
Á fundi borgarráðs 7. apríl 1998 var samþykkt samkomulag um skipan almannavarnanefnda í Reykjavík, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesbæ og Kjósarhreppi. Kemur þetta fyrirkomulag í stað þess sem kveðið er á um í 8. gr. laga um almannavarnir. Samkvæmt 9. gr. laganna er hlutverk almannavarnanefnda að skipuleggja og annast björgunar- og hjálparstörf vegna hættu eða tjóns sem skapast hefur vegna hernaðarátaka, náttúruhamfara eða af annari vá. Er almannavarnanefndum þannig falin skipulagning og framkvæmd ýmissa ráðstafana innan umdæma þeirra, s.s. skipulagning og samræming hjálparstarfs og hjálparliða, þjálfun þeirra og búnaður.
Almannavarnanefnd skal skipuð borgarstjóra, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, bæjarstjórum Mosfells- og Seltjarnarnesbæja, oddvita Kjósarhrepps og tveimur kjörnum fulltrúum frá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Auk þess sitja í nefndinni lögreglustjóri og slökkviliðsstjóri sem jafnframt er framkvæmdastjóri nefndarinnar og sér um daglegan rekstur hennar. Kjörtímabil almannavarnanefndar er hið sama og borgarstjórnar.
Borgarráð kaus Garðar Mýrdal af Reykjavíkurlista og Björn Bjarnason Sjálfstæðisflokknum, í almannavarnanefnd þann 20. júní 2002.
Undirnefndir almannavarnanefndar eru: - Framkvæmdaráð, sem skipað er borgarstjóra, bæjarstjórum Mosfells- og Seltjarnarnesbæjar og hreppstjóra Kjósarhrepps, auk lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra.
- Aðgerðastjórn, sem skipuð er fulltrúum lögreglu og slökkviliðs, fulltrúa frá björgunarsveitum og Rauða krossi Íslands. Auk þess sitja í aðgerðastjórn borgarverkfræðingur og héraðslæknirinn í Reykjavík. Einn fulltrúi er tilnefndur frá hverju sveitarfélagi.
|
 |