|
Fræðsluráð Reykjavíkur starfar skv. 12. gr. grunnskólalaga nr. 66/1995, sbr einnig 37. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996 og laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985. Borgarstjórn staðfesti samþykkt fyrir fræðsluráð 2. maí 2002.
Fræðsluráð, sem er skólanefnd Reykjavíkurborgar, sbr. þó samþykkt fyrir skólanefnd Kjalarness, skal sjá um að öll skólaskyld börn njóti lögboðinnar fræðslu. Ráðið skal staðfesta áætlanir um starfstíma nemenda ár hvert og fylgjast með framkvæmd náms og kennslu. Fræðsluráð markar stefnu í skóla- og fræðslumálum og er ráðgefandi fyrir borgarstjórn og borgarráð í málum sem til þess er vísað. Jafnframt fer það með verkefni borgarinnar að því er varðar stofnun og byggingu framhaldsskóla skv. lögum. Þá fer ráðið með málefni tónlistarskóla að því er varðar fjárhagslegan stuðning og annast tengsl við einkaskóla sem styrktir eru af borginni.
Fræðsluráð er skipað fimm mönnum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna fulltrúa og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil þess er hið sama og borgarstjórnar. Borgarstjórn kaus í ráðið 20. júní 2002.
Fræðsluráð heldur fundi annan hvern mánudag í Fræðslumiðstöðinni við Fríkirkjuveg, kl. 12.00.
Kjörnir:
Stefán Jón Hafstein formaður
Vigdís Hauksdóttir
Katrín Jakobsdóttir
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Til vara:
Sigrún Elsa Smáradóttir
Jóhann M. Hauksson
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Marta Guðjónsdóttir
Þorbjörg Vigfúsdóttir
|
 |