Hafnarstjórn

Hafnarstjórn starfar skv. hafnarlögum nr. 23/1994 og 2. gr. hafnarreglugerðar fyrir Reykjavíkurhöfn nr. 130/1986. Hafnarstjórn starfar í umboði borgarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og uppbyggingu hafnarinnar en skal leita staðfestingar borgarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs og ýmsum fjárhagsskuldbindingum sem binda hafnarsjóð til lengri tíma. Hafnarstjórn hefur endanlegt ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, s.s. ráðstöfun og aðstöðu þ.m.t. leigu á húsnæði og landi og veitir leyfi fyrir starfsemi á hafnarsvæðinu. Hafnarstjórn kemur að skipulags- og byggingarmálum á hafnarsvæðinu.

Hafnarstjórn er skipuð fimm mönnum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna fulltrúa í stjórninni og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og borgarstjórnar. Borgarstjórn kaus í stjórnina 20. júní 2002.

Hafnarstjórn heldur fundi hálfsmánaðarlega á þriðjudögum í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, kl. 8.15.

Kjörnir:
Árni Þór Sigurðsson
Helgi Hjörvar
Jóhannes Bárðarson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Kjartan Magnússon

Til vara:
Rúnar Geirmundsson
Ingólfur Sveinsson
Einar Gunnarsson
Ólafur R. Jónsson
Rúnar Freyr Gíslason


-Tölvupóstur í ráðhús-