Innkaupastofnun, stjórn

Stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar starfar skv. samþykkt fyrir stofnunina, sem staðfest var í borgarstjórn 1. apríl 1976, sbr. einnig samþykkt borgarráðs frá 27. júní 1995. Stjórn Innkaupastofnunar starfar í umboði borgarráðs.

Verkefni Innkaupastofnunar eru fyrst og fremst vöruinnkaup og samningar í því sambandi, svo og útboð á verklegum framkvæmdum og gerð verksamninga.

Stjórn Innkaupastofnunar er skipuð fimm mönnum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna fulltrúa og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil stjórnarinnar er hið sama og borgarstjórnar. Borgarstjórn kaus í stjórnina 20. júní 2002:

Stjórn Innkaupastofnunar heldur fundi vikulega að Fríkirkjuvegi 3, á mánudögum kl. 9.00.

Kjörnir:
Stefán Jóhann Stefánsson formaður
Hrólfur Ölvisson
Jóhannes T. Sigursveinsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Benedikt Geirsson

Til vara:
Jóhanna Eyjólfsdóttir
Guðmundur Lúther Loftsson
Steinar Harðarsson
Haukur Leósson
Ívar Andersen

-Tölvupóstur í ráðhús-