|
Íþrótta- og tómstundaráð starfar skv. samþykkt fyrir ráðið staðfestri í borgarstjórn 21. mars 2002. Íþrótta- og tómstundaráð starfar í umboði borgarráðs.
Ráðið skal móta stefnu í sínum málaflokki; m.a. vinna að eflingu íþrótta- og tómstundastarfs í Reykjavík og hafa samvinnu við þá aðila sem um slík mál fjalla. Ráðið hefur nána samvinnu við félög sem hafa íþrótta- og tómstundamál á stefnuskrá sinni og mótar stefnu um samstarf við þau. Þá hefur ráðið umsjón eða eftirlit með rekstri íþróttavalla, sundstaða, íþróttahúsa og félagsmiðstöðva sem eru í eigu Reykjavíkurborgar og öðrum skyldum rekstri eftir nánari ákvörðun borgarráðs.
Íþrótta- og tómstundaráð er skipað fimm mönnum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna fulltrúa í ráðinu og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil þess er hið sama og borgarstjórnar. Borgarstjórn kaus í ráðið 20. júní 2002:
Íþrótta- og tómstundaráð heldur fundi annan hvern föstudag að Fríkirkjuvegi 11, kl. 12.00.
Kjörnir:
Anna Kristinsdóttir formaður
Ingvar Sverrisson
Kolbeinn Óttarsson Proppé
Kjartan Magnússon
Benedikt Geirsson
Til vara:
Guðrún Erla Geirsdóttir
Helena Ólafsdóttir
Jóhannes T. Sigursveinsson
Bolli Thoroddsen
Friðjón R. Friðjónsson
|
 |