Jafnréttisnefnd

Jafnréttisnefnd starfar á grundvelli 10. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Nefndin starfar í umboði borgarráðs. Borgarstjórn staðfesti samþykkt fyrir jafnréttisnefnd 21. mars 2002.

Verkefni nefndarinnar er að hafa með höndum jafnréttismál innan Reykjavíkurborgar samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Nefndin skal vera ráðgefandi fyrir borgarstjórn í málefnum er varða jafnrétti kvenna og karla ásamt því að fylgjast með og hafa frumkvæði að sérstökum aðgerðum til að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Þá skal nefndin fylgja eftir jafnréttisáætlun, samþykktri í borgarráði 7. maí 1996.

Nefndin er skipuð fimm mönnum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kaus í nefndina 20. júní 2002.

Jafnréttisnefnd fundar annan hvern föstudag í Ráðhúsi Reykjavíkur, kl. 12.00.

Kjörnir:
Marsibil Sæmundsdóttir
Stefán Jóhann Stefánsson
Guðný H. Magnúsdóttir
Margrét Einarsdóttir
Tinna Traustadóttir

Til vara:
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
Linda Rós Alfreðsdóttir
Helga B. Ragnarsdóttir
Áslaug Guðmundsdóttir
Guðrún Inga Ingólfsdóttir

-Tölvupóstur í ráðhús-